þriðjudagur, desember 21, 2004
anyone who had a heart would love me too YEAH
me and mæ frend lís áttum huggó sumó stund í gær. Rukum á selfoss í sumarbústað eftir vinnu...drukkum vino, flippuðum í hárinu á mér ( - aftur - er búin að aflita endana - mamma sagði að *ritskoðað* og var þar af leiðandi ekkert sérlega glöð en mér er eiginlega sama því ég var á flippinu og þetta verður allt leiðrétt þegar ég kem heim úr reisunni miklu.) og síðan bara almennt spjall og nicelegheit....
Annars vorum við lísa að skipuleggja hringferð um landið (lísa ætlar að keyra og ég verð á kortinu og les fyrir hana upp úr ferðahandbókinni, við erum þegar byrjaðar að leita að hentugri dagsetningu og ef ég þekki lísu rétt er hún farin að kíkja í ferðahandbókina hennar mömmu sinnar) þegar ég kem heim þannig ég byrja á hringferð um heiminn og tek síðan ísland svona í bakaleiðinni svo þegar ég er komin í karlsruhe klára ég evrópu og eftir það er komin tími á heimreisu II....já en nóg um reisur.....eða ekki....ég er búin að vera að dunda mér að laga heimasíðuna zhatrip.blogspot.com og er ég orðin nokkuð sátt við hana svona...:) sjáum hvað sigrún segir;)
annars er ekkert sem fer meira í taugnar á mér þegar ég er þreytt en lélegar myndir - var að horfa á með öðru auganu national guards....afhverju eyðir fólk peningum í svona slappar myndir????
og svo til að enda þetta á væmni hvernig getur fólk verið ekki gott við litla bróðir minn....stundum langar mann bara að fara og ***** suma aðila......ARG!!! hvernig verð ég ef ég verð foreldri...verð örugglega ógeðslega over protective!!!!
Jammm og síðan er það víst djamm í kvöld - jíha....og já ég er líka að fara að baka með ömmu svona til að koma mér í holliday spiritið
og já var ég búin að minnast á að ég er húkked á oc - næsti þáttur á fimmtudaginn ég get ekki beðið!!!!!´
já og meira af fréttum haldið þið að ég hafi ekki náð að klemma taug á hægri hendi og get með herkjum gert minnstu hluti eins og t.a.m. hækka og lækka útvarpið í bílnum mínum - ég þarf að hringja í læknin og fá voltarin eina sem virkar á svona rugl....jæja ég held að ég sé komin í svefngalsa...yfir og út.....
jæja ég er farin
Viktoría posted at 07:45
.x.x.x.x.x.