.x.x.x.x.x.
fimmtudagur, október 07, 2004
L (ísa) - Word
ég og lísa horfðum á L-word og töluðum í síman á meðan um hann...það er nauðsynlegt...klassaþáttur og shane var vaughn eins og venjulega....tsss gleymdi að segja ykkur ég og lísa horfðum á ömurlegar myndir um dagin: mona lisa smile (omg hvað fékk mig til að fjárfesta í henni) og önnur - original sin ... sem átti að vera mjög hasarerótískmyndmeðantóníóogjólí en hún var ekki að virka......eiginlega bara mjög hræðileg - svo hræðilega að ég fór heim í miðri mynd og lét lísu síðan hringja í mig þegar hún var búin til að segja mér hvernig hún endaði.....ohhh hvað lífið væri auðveldara ef lísa væri bara strákur:Þ ala bókin.....
annars erum við lísa að hugsa um að fara í sumó á föstudaginn - taka old girl time á þetta: pedogmed, hair, el wino, gossipness og maskaraness og hvar annarsstaðar nema rétt fyrir utan selfoss....lísa á þó enn eftir að fá permit frá lækni og afa...vonum að það gangi upp....
annars er ég búin að eyða deginum í draumalandi hawaii....skoðandi hostæl (hostels-hostiles wtf) og mér finnst svo skrýtið að ég sé í alvörunni að fara út - hvorug okkar beilaði og allt er að gerast.....shits...og ekki nema rúmir 3 mánuðir þangað til...það er ekki langur tími..næsta ár verður svo skemmtilegt, heimsreisa og master.....allt að gerast!
Já og annað - það er ekkert eins notaleg og að sjá álversturnana þegar maður er á leiðinni heim úr vinnunni - þegar maður sér þá, þá er þetta bara liggur við eins og að sjá rúmið...grrr svo gott....það er eins og þeir segi fagnandi í öllum sínum röndótta ljóma:"velkomin viktoría - þú ert loksins komin heim eftir mikla baráttu við svefninn þennan síðasta hálftíma" yessness
úff og við taka 9 næturvaktir í röð vegna þess að ljúflingurinn "fyrrverandi kærastinn minn, sem talar ekki við mig lengur" var svo ljúfur að skipta svo ég kæmist í verkefnastjórnun - mar getur ekki annað en knúsað þessa dúllu.....gratsí....Eins gott að msn-partnerar standi sig vel.....
já og ég er búin að ákveða að halda kveðjupartý helgina 14-16 jan eða þar um bil og þemað verður HAWAII......yessness.......takiði daginn frá gott fólk........
hurru hitti hópinn minn í verkefnastjórnun og ég held að ég hefði ekki getað valið betur í hann sjálf mér líst bar þrusuvel á hann....en æ pís át ég er farin að læra - gó ut2
Viktoría posted at 00:13
.x.x.x.x.x.
miðvikudagur, október 06, 2004
efasemdarmenn - nú verður ekki aftur snúið
jæja krúselíur...núna í kvöld ákváðum við sigrún að taka tilboði sýru Vicky....yesness og við förum út 19. jan kl. 21:30 til Buenos Aires og er ég búin að fjárfesta í flugi til London Standsted þann 19. jan....í kvöld er ég síðan búin að vera eins og brjálæðingur að senda öllum sendirráðunum meil upp á hvort við þurfum vegabréfaáritun hjá þeim. En vegabréfaáritanirnar sem við algjörlega möst have eru: víetnam og kannski kína. Ferðaskrifstofan ætlar að redda ETA hjá ástralíu og síðan getum við keypt tourist card í mexico, kúbu og panama.....síðan er ég búin að hringja í sjóvá upp á tryggingar og virðist það vera bara mjög auðvelt sem við gerum þegar nær dregur að ferðinni - þarf reyndar að athuga hvort hægt sé að tryggja sig fyrir ferðarrofi þ.e. ef við missum af vélinni eða ef það er yfirbókað:Þ yessness...pabbi alltaf hress á því sagði við mig: viltu bara passa þig að vera nóg tryggð og athuga hvort tryggingin nái fyrir því að senda líkkistuna heim - alveg sá bjartsýnasti....Síðan er Sigrún búin að panta í sprautukokteila og ég ætla ég að reyna að fara í næstu viku til þess að láta að sprauta mig - við þurfum nú líka að fara á malaríukúr og ýmislegt svona skemmtilegt.....já há og í tilefni af þessu er ég búin að hækka heimildina á visa svo ég geti farið að borga þessa ferð - TIL Í KALLINN.........já og þegar ég fæ svör frá vegabréfadúddunum ætla ég að fara að finna gistingu á hawaii, nadi, kúbu, LA, LV, Buenos Aires, Lima, Santiago, Auckland og svona...líka fiska eftir góðu og ódýru flugi frá singapore til hanoi.....ohhh minni langar svo að kíkja til phuket í svona 3 daga bara upp á fönnið og það er ekkert svo dýrt.....
yessness og ég bíð æsispennt eftir próftöflunni 10.okt......ég á bókað eftir að verða á fyrsta og síðasta degi....crazyness....
Viktoría posted at 02:23
.x.x.x.x.x.
mánudagur, október 04, 2004
yessness og kúlness
þá er allt að smella og allt að fara að gerast...ég og sigrún erum eiginlega búnar að ákveða að slaufa vicky þar sem hún er alltaf í fýlu eða á sýru eða bæði...því núna hefur hún ekkert svarað mér ... síðan tekur hún líka ógeðslega mikið fyrir ferðina þannig við erum að hugsa um að massness this ourselves....ég er búin að finna nokkur mjög góð verð og hef lægst komist í rúm 240000 meðan vicky er að láta okkur borga um 300000 og kosturinn við þetta er að við getum ráðið okkur mun meira sjálfar ef við gerum þetta svona......já og síðan er ég búin að tala við sjóvá upp á tryggingar og er það bara no problemo.....
vegabréfaáritanir eru annar handleggur ég hringdi í utanríkisráðuneytið og hitti þar á mjög pirraðan og dónalegan einstakling, mér eiginlega bara brá að maður sem er að vinna í ráðuneyti skuli leyfa sér að tala svona niður til fólks....jæja allaveganna eftir þetta hræðilega símtal er ég búin að vera að reyna að senda þessum sendirráðum póst sem er sennilega bara eins og reyna að senda saddam póst.......því pósthólfin eru ekki virk, þeir svara ekki o.s.frv. þannig ég veit eiginlega ekki hvað við eigum að gera í því....ætli við neyðumst ekki til að hringja í öll þessi númer 'shits'.....
Síðan er ég líka búin að hringja í Visa og biðja þá um að hækka heimildina mína og verður það vonandi gert bara strax á morgun...síðan ætlum við að reyna að komast í sprautur bráðlega en við höfumst víst nægan tíma í það....síðan er skólinn byrjaður á fullu, hagverkfræðiverkefnið fer að byrja og gæða og verkefnastjórnunarverkefnin eru byrjuð - shits....
Viktoría posted at 15:24
.x.x.x.x.x.
sunnudagur, október 03, 2004
sleepzizzle
já...eftir svefnvana nætur þá fór ég upp í rúm kl. 18 til þess að fara að lesa...ég sofnaði held ég um 18:30....vaknaði tvisvar í 5 mínútur í senn og svaf síðan vært til 4:50....snilld....ég er líka ekkert smá rested og ekkert pirruð lengur:Þ
annars er bara lítið að frétta...ég er núna að fara að senda vicky travel gúrúnum okkar meil með smá breyttum ferðaatriðum, síðan er ég að fara að senda bréf á nokkur sendirráð upp á vegabréfaáritanir....síðan næsta föstudag ætlum við sigrún að reyna að fara í amk eitthvað af sprautunum sem við þurfum að fara í...stuð og stemming...já og í tilefni af því er míns komin í dæet....ekki freista mín með einhverju góðgæti....
úffness í kvöld ætlum við stelpurnar síðan að massa gæðastjórnunarverkefni part 2 vonandi að það gangi upp....ég ætlaði síðan að reyna að skvísa inn í þetta heimsókn til lísu veiku sem liggur heima með lungabólgu og einhvern annan viðbjóð.....yessness....bleble í bili
Viktoría posted at 08:10
.x.x.x.x.x.
laugardagur, október 02, 2004
Varúð - ein pirruð kaka
ja klar meina freunden ég kíkti til sigrúnar í gær með zha girls og við horfðum á ædol....æ mér fannst þetta slappur þáttur - of mikið sýnt af góðum og dómurunum og of lítið af kvikindaskap:Þ reyndar voru nokkur golden moments sem ég gat reyndar ekki horft á því ég fann svo til með aðilanum (Ó borg mín borg).....
EN anyways síðan kíktum við á oktoberfest og var hellingur af skemmtilegu liði þar en nei þar sem var vinnuhelgi hjá minni varð ég að fara heim kl. 23 ég var ekkert smá depressed að sjá alla vera að fara út að skemmta sér og ég var að fara heim enda gat ég ekki sofnað fyrr en seint og síðar meir þrátt fyrir mikið svefnleysi líka seinustu nótt.....ég hringdi mjög bitur í lísu og lét vaða yfir hana yfir hvað ég væri pirruð á öllu og öllum og depressed...að sjálfsögðu batnaði moodið.....og ég fór róleg að sofa enda búin að létta á skapinu...hehehe á lísu - my better half....any ways núna er ég að vinna...og ég er steikt núna
- ég finn enga lykt, illt í hálsinum, tæErd eins og mófó og síðan bara almenndur depressleiki þegar maður þarf að vakna snemma um helgar og veðrið er leiðinlegt með smá vott af pirring yfir ýmsu....
en higlights eru að ferðin er að smella og ég fór í geggjaðan saumó á fimmtudagskvöldið með barnaskólavinkonu mínum, það var fön og verðum við að halda þessu gangandi á regular basis....catch up á smá slúðri...já og svana bara farin út...skemmtu þér vel skvís í sviss.....
jæja the skem awaits me...skrifa meira seinna...
pís át......
Viktoría posted at 08:42
.x.x.x.x.x.