miðvikudagur, ágúst 01, 2007
Summerstorm's Double Dior 15.apríl 2006- 27.júlí 2007Æ þetta er búið að vera erfitt. Ég var að passa alla doggana fyrir mömmu og pabba hér fyrir austan, Dior var búin að vera veik en var þó búin að lagast. Á mánudaginn versnaði henni aftur og ég fór með hana til læknis - þeir gáfu henni lyf en það virðist ekkert hafa lagað hana og ég ætla ekki í öll detailin enda finnst mér of erfitt að tala um það en hún dó í fanginu hjá mér á fimmtudagskvöldinu. Það var rosalega erfitt en sem betur fer á ég frábæra nágranna vinkonu sem hjálpaði mér og var með mér þegar hún dó. Síðan hjálpaði maðurinn hennar mér að setja hana í poka til þess að fara með hana upp á dýraspítala í krufningu. Úr krufningunni kom fram að þindin hafi verið brostin og vökvi í lungum - þannig það hefði ekkert verið hægt að gera fyrir hana... en svona er nú lífið - en þetta var bara svo einstakur hundur - falleg að utan sem innan og hún bara átti mann......síðan vil ég bara að segja að fólkið hér fyrir austan er æði og sérstaklega það sem ég er að vinna með - allir sem vita þetta eru búnir að vera svo sætir og fylgjast með baráttunni.....
Síðan kíkti ég nú til sólveigar í mývatnssveitina til að kúpla mig aðeins út úr hlutunum og var það mjög fínt - gaman að komast í rólegheitin, drekka rauðvín og spjalla við sólveigu um daginn og veginn:)
Annars er mar á leiðinni í bæinn á föstudaginn - keyri með alla doggana....verð samt væntanlega ekkert viðlátin - það er stíft túristaprógramm um helgina en jæja sé ykkur!
Viktoría posted at 15:18
.x.x.x.x.x.