fimmtudagur, júní 29, 2006

ótrúlegt en satt er ég búin að setja inn myndir undir PHOTOS
þar er 17.júní, eurovision, road trippið og síðast en ekki síst football!!!

Viktoría posted at 20:21
.x.x.x.x.x.

mánudagur, júní 26, 2006

football is coming home

Jæja þá eru Birgitta og Sigga komnar og farnar. Það var ekkert smá skemmtó að fá þær í heimsókn og var ýmislegt gert. Við tókum gott Road trip og var það svona: Karlsruhe - Freiburg - Calmar (frakkland) - Strassburg - Lúx - Tríer - Karlsruhe....og það var ekkert smá gaman að sjá þetta...Calmar er ekkert smá fallegur og rómó staður - fyrir utan nokkra morðóða svani...og svo komumst við af því að frakkar eru með bastard appeal dauðans! Freiburg og Strassburg voru líka krúttlegar. Lúx er falleg líka með mjög tignarlegt gil í miðjunni á borginni - plús þar fengum við að sjá the ultimit skrúðgöngu með men in uniform - þar voru m.a. tollverðir í leðurbúning á móturhjólum...veit samt ekki alveg hvenær þeir ættu að þurfa að nota þann búnin en óhh well þeir voru að lúkka...Í tríer var svo Altstadtfest og þvílík stemming og fullt af böndum að spila - bandið undercover átti svæðið og var heavy skemmtó að dansa þar. Á laugardaginn var svo uni-fest þar sem við kynntumst strák sem leit út eins og vondi gaurinn í charlis angles 2 - with beer goggles....Já skemmtó skemmtó
Annars er ég bara mjög ánægð með frammistöðu þýskalands í hm og eins og sést að ofan þá er mar alveg dottinn inn í stemminguna hér - við fórum the distance, fáninn, andlitsmáling, head band...everything og ógó gaman þegar þeir unnu - verst hvað þetta var auðveldur sigur - leikurinn liggur við búinn á fyrsta korterinu! en anyways...hversu flott hár er Ballack með???
Og já ég var fokking kreisý í gær þegar ég horfði á holland - portúgal...portúgalar áttu SVO ekki skilið að vinna og þvílíkur leikaraskapur hjá þeim....eitt er amk víst sama við hverja þeir spila þá mun ég ekki halda með þeim og btw Figó er drusla!
Og já aðrar stórar fréttir...ég er að fara að flytja heim - kem sennilega heim um miðjan október og er að fara að vinna og klára vonandi diplom. ing. með vinnu... já spennandi tímar framundan!

Viktoría posted at 21:21
.x.x.x.x.x.

sunnudagur, júní 18, 2006

hó hó jibbý jey og jibbý jey það er kominn 17.júní!!!
Í gær fögnuðum við hér 17.júní í karlsruhe..hafrún og bjargey eiga þakkir skildar fyrir frábæra skipulagningu og frábæran dag. Við byrjuðum á því að fara til forscheim en þar er svona tilbúið vatn og strönd sem hægt er að fara í....þar var fækka fötum og reynt að massa tanið enda 30 stiga hiti....alveg sweet.... svo var farið í leiki - það var búið að skipta í lið en litirnir voru að sjálfsögðu hvítt, rautt og blátt.....ég var í hvíta liðinu og vorum við brúðir!!! við náttlega rúlluðum keppninni upp og unnum!!!yeah...... svo var grillað, kjaftað, sungið, dansað og bara já - æðislegt....
ég bjargey, einar og kjartan fórum svo á stadtmittel í góða sveiflu.....
en annars l8ter

Viktoría posted at 10:38
.x.x.x.x.x.

laugardagur, júní 17, 2006

superstar...turkey....
Ég er farin að starfa hjá rauða krossi þýskalands við það að heimasækja einmanna gamalt fólk. Í gær fór ég að heimsækja Karl sem er 85 ára gamall þýskur maður, missti konuna sína fyrir 5 árum og er alveg svakalega hress en einmanna....Hann var algjör dúlla, búinn að kaupa bakkelsi og taka til áður en ég kom. Síðan spjölluðum við um daginn og veginn - hann nú aðalega og ég náði svona helmingnum sem hann sagði því hann talaði svo hratt...síðan sýndi hann mér hljómborðin sín 2 og spilaði fyrir mig samba, countrý, rúmbu og tangó lög....algjör rúsínubolla....ætla sennilega að hitta hann aftur á morgun....
En allaveganna í dag er síðan 17.júní skemmtun hjá íslendingunum hér....ég er í hvíta liðinu ásamt frú sigríði, elínu, gumma og jóni atla...það kemur í ljós á morgun hvað við verðum:Þ
en allaveganna birgitta og sigga eru að koma til mín og við erum að fara að driva út um allt hérna, svo fer ég til dublin að hitta foreldra barnsins - jihhh get ekki beðið eftir að knúsa hunda.....síðan erum við búin að panta til kanarí um jólin:Þ jíha - það á þó enn eftir að sannfæra sólveigu og kiddið aðeins betur:Þ
já og allir að hlusta á lagið no no never með texas lightning!!!
schuss

já og ps...
það er sko vangefin stemming hér út af hm - ég hefði aldrei haldið að ég myndi standa yfir heilum leik og vera spennt en það gerðist...ég hélt að þýskaland myndi aldrei koma tuðrunni inn í viðureigninni gegn Póllandi....össs en það varð líka allt tryllt þegar þeir skoruðu....og þegar ég var að hjóla heim ómaði football is coming home út um allt og allir bílar voru að keyra um með þýska fánan blaktandi og bibandi bílflautunum....já það er gaman að vera í þýskalandi þegar hm er:)...og muniði Deutschland wird Weltmeister!!!!!

Viktoría posted at 09:08
.x.x.x.x.x.


Tenglar
ZhaWorldTrip Agnes Bridget VerzloGellur Saumavelin álftanespjötlur Lísa Sonja Strumpurinn Erla a.k.a. Gyða sól enRíkey Guðný Nielsen Sigga Sibbinn Eyja
PHOTOS
PHOTOS 2
Heimsreisumyndir
Myndasíða Fjólu
Gamall SkÍtur
E-meil
  • júlí 2004
  • ágúst 2004
  • september 2004
  • október 2004
  • nóvember 2004
  • desember 2004
  • janúar 2005
  • febrúar 2005
  • júní 2005
  • júlí 2005
  • ágúst 2005
  • september 2005
  • október 2005
  • nóvember 2005
  • janúar 2006
  • febrúar 2006
  • mars 2006
  • apríl 2006
  • maí 2006
  • júní 2006
  • júlí 2006
  • ágúst 2006
  • nóvember 2006
  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • október 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • apríl 2008