.x.x.x.x.x.
miðvikudagur, desember 08, 2004
Halelúja Halelúja Halelúja HALELÚJA
við erum búnar að borga alla ferðina:) nú verður ekki aftur snúið og erum við bara að bíða eftir flugseðlunum....jibbý....ég er líka búin að tryggja mig þannig það er lítið eftir sem á eftir að gera....sansa lyfin og financin....jú ég á líka eftir að fara í tvö próf god damn it...ég nenni því ekki....
já og updeit: heitasta par nágranna er að hætta saman - susan og karl kenedy - þvílík spenna....jammsí
síðan horfðum við lís á butterfly effect í gær - massa góð og já hottnessin í dag kutcher og björn jörundur...
pís át
Viktoría posted at 18:26
.x.x.x.x.x.
þriðjudagur, desember 07, 2004
jæja ég og lísa fórum í hárgreiðsluleik í gær - núna hef ég gone back to the basic and returned to my roots....yebb fólk ég er orðinn dökkhærð aftur - ég hef ekki verið dökkhærð síðan í 3.bekk í versló.....viðbrögðin eru blendin....mamma var ekki sátt, amma nr.2 var ekki sátt....ég er þó nokkuð sátt enda finnst mér bara gaman að breyta til - þoli ekki stöðnun......já og sýru vicky er farin í frí til 4.jan þannig ég og sigrún erum nokkuð pússlaðar á því hvernig við eigum að klára að borga ferðina....hún er nú alveg creizý þessi gella!!!
Viktoría posted at 06:05
.x.x.x.x.x.
laugardagur, desember 04, 2004
hmmm batterfield earth eða verkefnastjórnun?.....verkefnastjórnun.....það er víst mús í sg....úff me don't like......
Viktoría posted at 23:59
.x.x.x.x.x.
Idol - er markmiðið að fá alla kvk til að hætta að horfa á þetta???
ég var ekkert smá vonsvikin með ædolið í kvöld - eini almennilegi gaurinn sem hefur sést í idol var látinn sleppa í burtu - Einir verkfræði hottness var vótaður út....hvað er það?????
HVAR VORU ALLAR GELGJURNAR MEÐ GSM SÍMANA SÍNA - HVAÐ KLIKKAÐI????
Þetta átti að vera rock solid, mar hélt að hann gæti ekki dottið út með allar smápíkur og verkfræðina á bak við sig ......
ok dómnefndi er skipuð 2 kk og lesbíu, - ætli það sé ástæðan fyrir því að idolið verður sennilega bara skipað kvensum?
ég er amk búin að ákveða það að ég nenni ekki að horfa á ædolið ef það eru bara zjellingar í því...ég meina maður verður að hafa eitthvað að horfa á og halda með þarna...
alveg myndi ég skipta út bubba eða siggu fyrir t.a.m. tískulögguna hann svavar..hann hefur amk ?góðan? smekk á kk....og örugglega ekkert minna vit á söng en þau.....þorvaldur er eini sem hægt er að taka mark á enda með stöffið á hreinu....
ef við skoðum idol söguna mína þá hélt ég með helga seinast - kemur kannski ekki á óvart því hann var skemmtilegur og sætur gaur, með fallega rödd - þegar hann datt út þá nennti ég eiginlega ekki að horfa á þetta því guð forði því að fimmhundruðkallinn og kalli geri eitthvað fyrir mig...hvað þá kvensurnar sem voru eftir....æ þetta var fúlt....því halelúja mér fannst hann vera að gera það - flott þung, rám rödd, massa kinnbein og hottness útlit hvað þarf meira:Þ....
EN ef við skoðum líka hvernig plötur seljast......ég sé hottnessið í svona rokki - ég myndi kaupa þannig plötu - hver kaupir plötu með kalla bjarna eða fimmhundruðkallinum (sykurleðja dauðans) nema vera heyrnadaufur....ég er reyndar ekki búin að leggja á mig að hlusta á þessa diska en þeir eru víst búnir að fá hræðilega dóma....en svona er þetta víst en ég skil ekki afhverju þessu hæfileikaríka fólki í hópi 3 var ekki skipt niður á fyrstu tvo hópana til að gera þá jafnari í stað þess að hafa tvo mjög slaka hópa og síðan einn frábæran.....æ þetta er komið nóg um ædol...heheheh ein að missa sig:) - en ég verð að propsa ylfu fyrir massa rödd.....
annars vorum við stelpurnar það djarfar að læra til 1 og núna er ég að fara að lesa verkefnastjórnun.....hamingja.....
og ég er búin að sansa skipti fyrir próflokadjammið....dagarnir eru óðum að fyllast þangað til ég fer út:)
Viktoría posted at 01:02
.x.x.x.x.x.
fimmtudagur, desember 02, 2004
Vá það er komin desember - og aðeins 46 dagar þangað til við förum út:)
ég er búin að vera veik - ef þið viljið vita hvernig mér líður þá skuluð þið ímynda ykkur að það sé verið að stinga ykkur í kviðarholið aftur og aftur og aftur...not very good.... ég er búin að vera með íbúfen í æð og þar með eru dagarnir búnir að vera í móki...annars er lítið búið að gerast hjá mér, fór í sprautur og er búin að taka þátt í talningarmaraþoni í hinni vinnunni annars er mar svo bara að reyna að byrja að læra - skólinn loksins búinn!! já og góðar fréttir ég er búin að fá áfram í vinnunni þannig ég vinn til 18. janúar - halelúja, ekki nóg með að það sé gott að fá pening í budduna að þá er þetta líka andlegt - því tíminn líður mun hraðar þegar það er nóg að gera.....yessness jæja bleble
Viktoría posted at 18:25
.x.x.x.x.x.