.x.x.x.x.x.
miðvikudagur, nóvember 10, 2004
pirringur vol2
zha pirrings heldur áfram.....hagverkfefnið engan vegið búið og kynning á morgun, verkefnastjórnunarhlutinn minn ekki góður, express og vicky hafa ekki haft samband...búhúhú.....
en ég á ammmli á morgun og við erum skráðar á fáránleikana á föstudaginn - SHAKE YOUR BODY.....ég ætla að verða pifff hreeeessss....
Viktoría posted at 17:16
.x.x.x.x.x.
þriðjudagur, nóvember 09, 2004
ég er pirruð
af því liggja margar misgóðar ástæður
a) icelandexpress ákvað að fella niður flugið sem við áttum pantað 19. janúar, ég hef ekkert svar fengið frá þeim upp á hvort þeir vilji borga hótel fyrir okkur ef við förum 18. janúar eða hvað. Ef þetta skýrist ekki í dag ætlum við sigrún að fá peninginn til baka og fara með icelandair þann 19. janúar...ég heldur ekkert mjög spennt fyrir því að hanga sólahring á hóteli í london.....
b) ég er svöng og massíft þreytt
c) var að fá sms frá kvensjúkdómalækninum - á tíma á morgun var búin að gleyma honum - ég huxa að ég cancelli honum nenni ekki að fara.
d) verkefnin ganga ekki eins vel eins og ég bjóst við
e) ég er komin með háa sekt á bókasafninu
f) ég þarf að hækka yfirdráttinn
g) bækurnar sem ég pantaði á amazon eru ekki ENN komnar
h) gullkortið mitt er ekki enn komið
i) Vicky svarar mér ekki ARG það er að gera mig crazý
j) ég þarf að fara með hundinn minn í aðgerð á morgun akkúrat þegar ég þarf að klára öll verkefni
k) aðeins 12 lið eru leyfileg á fáránleikunum - hvað er það? þannig að einhver í liðinu okkar þarf að sitja við tölvuna kl. 12:30 til að skrá liðið okkar, ef við komumst ekki inn þá verð ég crazý - búin að redda mér skiptivinnu og allt!
jæja ég læt þetta duga
ble
Viktoría posted at 11:42
.x.x.x.x.x.
mánudagur, nóvember 08, 2004
hæsta höndin
was up bítches...another monday.....crap......
smá recap á helginni - fór að sjálfsögðu að djamma á laugardaginn - hvað annað, ég, sigrún kr og guðný bí fórum á pottafyllerí, vorum sum sé í heita pottinum hjá mér í svona 3 tíma og fórum svo niður í bæ - sú regla hefur komist á að þegar við þrjár förum að djamma að þá erum við alltaf vel hreeesssar og þetta kvöld var sko engin undantekning.....farið var á hressó,nellys,celtic,kaffibarinn,kaffi list, ógeðslega barinn sem var Amigos og eitthvað meira...skot á hverri búllu þannig mar var orðinn þokkalegur mjög snemma....ég hélt ég hefði verið mega gella þangað til ég komst í spegil og fannst það sniðug hugmynd að varalita mig með rauðum varalit...ehhhhhhh redness all around..náði samt aðeins að laga það.....en held að í endan hafi ég ekki verið að lúkka enda rigning og svona....smá svona einkahúmor (ragga and the red shot, woorkinnng 9 to 5 sjáðu gæjan....ohhhh....bíddu er þetta strákurinn sem...bíddu...hahhahahha....úps......, schtelpur þið eruð fráááábærar, L words, hæsta hæsta hæsta höndin....os.frv. o.s.frv. o.s.frv.)
síðan er alltaf hressandi að skoða outboxið daginn eftir......og jú að sjálfsögðu inboxið líka;)
daginn eftir var ég EKKI jafn hress - við krössuðum hjá guðný bí og ég héld ég væri að deyja þegar ég vaknaði...höfuðverkurinn var crazyness og síðan var ég með the sheiks and everything og það versta var að ég átti að fara að vinna verkefnið í hagverkfræði...ég varð að koma seinna því ég var ekki í ökufæru ástandi en síðan hresstist ég og fór og massaði verkefnið - við náðum samt ekki að klára:(
þannig núna er bara brjálað að gera ....best að fara að gera eitthvað að viti!
Viktoría posted at 13:07
.x.x.x.x.x.
miðvikudagur, nóvember 03, 2004
Síðustu dagar eru búnir að vera mjög viðburðalausir...bara verkefni og læra...og verður þetta svona til 22.nóv
- á föstudaginn - klára gæðastjórnunarverkefni III,
um helgina - klára hagverkfræðiverkefnið,
þriðjudagur og fimmtudagur - kynning á þessum verkefnum...
á laugardeginum eftir það - gæðastjórnunarpróf,
þriðjudeginum eftir það skila og kynna verkefnastjórnunarverkefni III.....
sem sé pökkuð dagskrá til 23.nóv!!!!Stemmari.....sem þýðir unfortunatelly no djamm - eða svo að segja:Þ kannski verður eitthvað tekið á því inn á milli mar veit aldrei - ég er líka alltaf svo góð í hópverkefnunum þegar ég er þunn:Þ
ég efast samt stórlega um að ég fari á sálina næstu helgi eins og stefnt var að, sérstaklega þar sem miðinn kostar 2000 og ég er í sparnaði....já ég þarf að hugsa þetta betur...
já síðan er ég búin að ákveða að return to my roots .... Ég ætla að fara úr blondínu í brunette.....áður en ég fer út og stytta það svoldið mikið.....
pís át fós
Viktoría posted at 18:02
.x.x.x.x.x.